

Í drögunum er lagt til að börn verði að hafa náð 135 sm hæð til að vera farþegar á mótorhjólum. Árni Sæberg
Leyft að reiða á reiðhjóli
Bloggað um fréttina
-
Morten LangeFáránleiki "sérfræðinganna" bara að hálfu
-
Jón Örn ArnarsonHenda rusli á ferð?
-
Ómar RagnarssonBurt með ósið. Óþörf hækkun ?
Bannað verður að henda rusli úr ökutæki á ferð og leyft verður að reiða á til þess búnum reiðhjólum samkvæmt drögum að frumvarpi til nýrra umferðarlaga. Fallið hefur verið frá ákvæði um hámarksfjölda farþega í bílum ungra ökumanna um helgar. Drögin eru nú lögð fram í annað sinn.
Frumvarpsdrögin eru fjölþætt. Þar er m.a. lagt til að ef hjólastígur og göngustígur liggi samhliða verði einungis leyft að hjóla á hjólastígnum.
Í 42. grein er lagt til að „[í] stað þess að bannað sé að reiða farþega á reiðhjóli (eldri en 7 ára) er lagt til að heimilt sé að hafa farþega á reiðhjóli ef það er sérstaklega til þess gert.“
Umdeilt ákvæði um takmörkun á fjölda farþega ungra ökumanna aðfaranótt föstudags og laugardags hefur verið tekið út.
Þá er lagt til að ákvæði um ökukennslu og ökunám verði einfölduð nokkuð og jafnframt er ökunámsnefnd sem lagt var til að sett yrði á stofn í upphaflega frumvarpinu tekin út í þessum drögum.
Lagt er til að heimild til æfingaaksturs verði lengd í 18 mánuði. Einnig að æfingaakstur á bifhjóli skuli fara fram á lokuðum svæðum.
Þá er lagt til að ákvæði um notkun hlífðarfatnaðar við akstur bifhjóla verði tekið út, en hagsmunaaðilar munu hafa sett fram ítarleg rök fyrir því að óraunhæft sé með öllu að lögbinda notkun slíks hlífðarfatnaðar.
Lagt er til að gjald vegna einkamerkis verði hækkað í 50.000 krónur en það var
25.000 krónur.
Drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga eru nú til umsagnar öðru sinni
hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um
drögin til og með 26. nóvember n.k.
|
|
Ný drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga |
Til baka








Senda inn efni