Innlent | mbl.is | 21.11.2009 | 18:30
Bílvelta í hálku í Langadal
Bíll valt í Langadalnum nú um sexleytið í kvöld. Lögreglan á Blönduósi var kölluð til, en í bílnum var ökumaður og tvö börn. Ekki urðu alvarleg slys á fólki en ökumaðurinn og annað barnið kvörtuðu yfir eymslum í hálsi.
Tildrög slyssins voru þau að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í hálku, en hún er nú mjög mikil á þessum slóðum og full þörf á að fara sér hægt. Fólkið var flutt til Akureyrar til frekari aðhlynningar á sjúkrahúsinu þar.
Þá kom lögreglan á Blönduósi að öðrum útafakstri rétt við Blönduós. Þar höfðu engin slys orðið á fólki en ástæðan var sú sama, fljúgandi hálka hafði sent bílinn út af.
Til baka
Innlent — Fleiri fréttir
Í dag
18:56
Fleiri bílar innkallaðir
16:28
Bömmer á myntkörfuláni
15:51
Lýst eftir eigendum muna
14:51
Greiðfært um Suðurland
14:04
35 milljóna króna sekt
13:13
Vefur fyrir ferðamenn
12:30
Senda út athugasemdabréf
10:51
„Alveg skínandi loðna“
10:05
SV-lína áfram á ís
09:05
Útför Steingríms í dag
08:36
Vísa Vítisengli úr landi
05:30
Hagar vafalítið skoðaðir
05:30
Minni niðurgreiðslur
05:30








Senda inn efni

