[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Barack Obama.

Barack Obama. KEVIN LAMARQUE

Erlent | mbl.is | 21.11.2009 | 18:03

Mjótt á munum í öldungadeildinni

Öldungadeild Bandaríkjaþings undirbýr sig nú fyrir að halda atkvæðagreiðslu um viðamikið 2.000 blaðsíðna frumvarp demókrata um breytingar á ameríska heilbrigðiskerfinu.  60 atkvæði þarf af 100 í öldungadeildinni svo að frumvarpið fái að halda áfram til frekari þinglegrar meðferðar.

Greint er frá þessu á fréttavef BBC.

Demókratar, undir forystu þingmannsins Harry Reid sem er flutningsmaður frumvarpsins, þurfa því að tryggja sér atkvæði tveggja óháðra þingmanna, þar sem allir 40 repúblikanarnir í öldungadeildinni eru andsnúnir frumvarpinu. Demókratar þurfa ekki síður að fullvissa sig um eininguna innan sinna eigin raða, því að minnsta kosti þrír þeirra hafa lýst yfir efasemdum um frumvarpið.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur gert breytingar á heilbrigðiskerfinu að forgangsmáli í bandarískum stjórnmálum. Ef ekki tekst að koma frumvarpinu í gegnum þessa atkvæðagreiðslu og inn í þingumræður segja stjórnmálaskýrendur að það þýði ekki endilega endalok þess, en að það geti seinkað ferlinu umtalsvert fram á næsta ár.

Fulltrúadeildin, eða neðri deildin, samþykkti frumvarpið í svipaðri atkvæðagreiðslu með litlum mun fyrir skömmu síðan.

Næstu skref verða þau að 30. nóvember kemur öldungadeildin aftur saman eftir stutt hlé í kringum þakkargjörðarhátíðina. Þá verður frumvarpið rætt og væntanlega einhverjar breytingar á því lagðar til.

Að minnsta kosti þremur vikum síðar mun öldungadeildin greiða atkvæði um frumvarpið. Ef það fær samþykki verður sett upp samráðsnefnd á milli neðri og efri deildar þingsins til að sameina breytingar hvorrar deildar á frumvarpinu í eitt frumvarp. Að því loknu kjósa báðar deildir um frumvarpið. Ef það hlýtur samþykki þarf undirskrift Baracks Obama til þess að það taki gildi sem lög.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars