Sláttuvélar eru skaðræðistól
Á síðustu fimm árum hafa 66.000 Bandaríkjamenn þurft að leita á slysadeildir sjúkrahúsa þar í landi, eftir að hafa slasað sig á litlum sláttutraktorum. Þetta kemur fram í grein í nýjasta hefti Journal of Safety Research.
Greint er frá þessu á fréttavef BBC.
Flestir þeirra sem slösuðu sig fengu aðeins skrámur eða tognuðu, en allnokkrir þeirra brutu bein eða misstu útlimi. Sex dóu. Flest tilfellin urðu þannig að vélarnar ultu á hliðina.
Í um eitthundrað tilfellum höfðu sláttuvélarnar keyrt yfir fólk. Þar af voru allnokkur tilfelli þar sem börn höfðu setið í fanginu á þeim sem stjórnaði vélinni, en fallið útbyrðis. Flestir þeirra slösuðu voru karlmenn yfir fertugu, enda aðallega þeir sem nota svona vélar.
Umtalsverður fjöldi manna varð fyrir fljúgandi braki. Í Bretlandi er talið að um 6.500 manns slasi sig á svona sláttuvélum á ári hverju. Á síðasta ári voru 530 manns lagðir inn á spítala í Englandi einu, eftir að hafa slasað sig á þeim.
Á meðal þeirra sem lent hafa illa í því á sláttutraktorum er Bryan Hamilton, fyrrum knattspyrnustjóri Norwich City. Hann þurfti að fara í skurðaðgerð eftir að fóturinn á honum fór í blöðin á sláttutraktornum hans. Tærnar á honum brotnuðu og fóru úr liðum, og liðbönd og slagæðar rifnuðu upp, þegar hann reyndi að stökkva af traktornum á ferð.
Til baka








Senda inn efni

