Eldur í ruslinu
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út tvívegis með stuttu millibili í kvöld vegna elds annars vegar í ruslatunnu og hins vegar í hurð að ruslageymslu.
Um hálftíu í kvöld þurfti að slökkva eld í viðarhurð á ruslageymslu í Kjarrhólma í Kópavogi, en sagðist slökkviliðsmaður á vakt að svo stöddu ekki geta sagt til um hvort grunur væri um íkveikju. Vel gekk að slökkva í eldinu, en dálítinn tíma tók að reykhreinsa geymsluna.
Rétt rúmum hálftíma síðar hringdu svo skelkaður íbúi á Lindarflöt í Garðabæ, en eldur hafði komið upp í ruslafötu á heimili hans. Íbúanum hafði þó tekist að slökkva eldinn er slökkviliðið bar að garði.
Til baka








Senda inn efni

