[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Tjostolv Moland og  Joshuna French.

Tjostolv Moland og Joshuna French.

Erlent | AFP | 23.11.2009 | 13:07

Krefjast staðfestingar dauðadóms yfir Norðmönnum

Saksóknarar í Lýðveldinu Kongó hafa krafist þess, að herdómstóll staðfesti dauðadóm yfir tveimur Norðmönnum, sem undirréttur í Kongó dæmdi til dauða fyrir morð og njósnir. Reiknað er með að áfrýjunardómstóllinn birti niðurstöðu sína í vikulokin.

Þeir Tjostolv Moland, 28 ára, og Joshua French, 27 ára, voru í september fundnir sekir um að hafa myrt bílstjóra sinn og fyrir að njósna fyrir norsk stjórnvöld. Norðmennirnir halda fram sakleysi sínu og segja að glæpamenn hafi ráðist á þá og myrt bílstjórann.

Fréttir frá Kongó hafa verið nokkuð ruglingslegar en í október var fullyrt, að Moland hafi játað einhverja ábyrgð á dauða bílstjórans. Í norskum fjölmiðlum kom einnig fram, að Moland hefði átt við veikindi að stríða síðustu vikur og ekki verið með sjálfum sér.   

Saksóknari krafðist þess fyrir áfrýjunardómstólnum að dauðadómur yfir mönnunum verði staðfestur. Þá krefjast stjórnvöld í Kenýa að Noregur greiði skaðabætur vegna njósna Norðmannanna tveggja.  

Norðmennirnir tveir ráku öryggisþjónustufyrirtæki í nágrannaríkinu Úganda. Þeir eru fyrrum norskir hermenn en norsk stjórnvöld segja þá engin tengsl hafa við norska herinn.

Norska ríkisstjórnin segir stjórnvöld í Kongó hafi lýst því yfir að dauðadómi verði ekki fullnægt. Þá verði kannað hvort mennirnig geti afplánað hluta af refsingu sinni í Noregi. 

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær