Brown álítur Icesave bindandi
Bloggað um fréttina
-
Ívar PálssonDökki hesturinn kemur fram
-
Guðrún Sæmundsdóttir2.450 ára gamalt Iceslave mál
-
Ásta Hafberg S.Icesave, engin uppgjöf
-
Brynjar JóhannssonBrown álítur icesave ávanabindandi.
-
S Kristján IngimarssonThe lunatics have taken oer the asylum
-
Jón Valur JenssonGordon Brown viðurkennir afgerandi mikilvægt
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirNú hlakkar í herra Brown
-
Anna Sigríður GuðmundsdóttirSiðferðisleg skylda!
-
Guðmundur Jónas KristjánssonHalló Jóhanna! Nú er þinn tími farinn! Útrunninn!
-
Stefán Friðrik StefánssonBrown valtar yfir Jóhönnu - ósýnileg forysta
-
Sigurður HrellirPrófsteinn á forsetaembættið
-
FrjálshyggjufélagiðVanhæf ríkistjórn
-
Sigurður JónssonSkiptir ekki máli hvað Brown segir. Ólafur
-
Ægir Óskar HallgrímssonEn vextirnir???
-
Jón Aðalsteinn JónssonSýna tennurnar
-
Benedikta EÞað verður að segjast eins og það er - að þessar
-
Ómar Bjarki SmárasonHversu víðtækt er umboð forsætisráðherra til að
-
Haraldur HaraldssonBrown álítur Icesave bindandi/
-
Baldur Már RóbertssonHvar er pottapakkið núna ??
-
Kristinn PéturssonGordon Brown er ábyrgur fyrir breskri
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirJóhanna vinsamleg við Gordon Brown
-
Gunnar Skúli ÁrmannssonEr þetta "Nýja Ísland" Jóhanna?
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson"Í anda sanngirni og góðvilja"
-
Loftur Altice ÞorsteinssonBréfdúfan Anders Fogh Rasmussen skilaði sínu !
-
Kolbrún HilmarsTími Jóhönnu er kominn.
-
Gunnlaugur BjarnasonÚtrásarvíkingarnir eru saklausir kórdrengir !
-
Ómar GeirssonÞetta er sorglegt fyrir þjóðina.
-
Einar GuðjónssonTók 4 daga að þýða bréfið ?
-
Ingólfur H ÞorleifssonHlegið um alla Evrópu.
-
Sigríður Laufey EinarsdóttirVinstri grænir hundflatir
-
Sigurður Rúnar SæmundssonÞetta er sorg.
-
Ari Þóríslenska ríkið sé að ábyrgjast skuldbindingar, þó
-
Axel Jóhann AxelssonJóhanna niðurlægð af Bretum og Hollendingum
-
Eggert VébjörnssonJóhanna er klárlega vanhæf og vitskert!
-
Reynir W LordHvað finnst ykkur um þessi umæli
-
Óðinn ÞórissonÞví miður Jóhanna
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, svaraði bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra frá 28. ágúst þann 13. nóvember síðastliðinn. Í svarbréfi sem hann sendi þá þakkar hann Jóhönnu fyrir bréfið og segir að það hafi vakið hjá honum hugsanir og hann hafi íhugað það náið síðan þá.
Hann segist jafnframt telja þróun málsins síðan í sumar hafa verið mjög góða. Frumvarpið um Icesave-málið sem nú sé verið að ræða á Alþingi, þ.e. seinna frumvarpið um það mál, muni tryggja að lánasamningarnir vegna málsins verði lögfræðilega skotheldir. Það sé mikilvægt skref fyrir alla aðila. Hann kveðst fagna því að ríkisstjórn Jóhönnu vilji tryggja að skuldbinding íslenska innistæðutryggingasjóðsins sé bindandi.
Hann kveðst jafnframt vona að málið geti nú leyst fljótlega svo hægt sé að líta fram á veginn.
Jóhanna Sigurðardóttir sendi honum annað svarbréf fjórum dögum síðar, þann 17. nóvember. Þar segir hún að hún verði að bregðast við áherslu Browns á það að ábyrgð íslenska ríkisins sé bindandi. Hún nefnir fyrirvara Alþingis sem gerðir voru fyrr í haust. Eftir að þeir hafi verið útlistaðir hafi þó eitt mál staðið sérstaklega út af. Það hafi verið viðurkenningin á þeirri staðreynd, að íslenska ríkið sé að ábyrgjast skuldbindingar, þó svo að því beri ekki ófrávíkjanleg lagaleg skylda til þess.
Í lok bréfs síns segir Jóhanna að ef staða Íslands í málinu myndi skána á einhverjum tímapunkti í framtíðinni, vegna úrskurðar þar til bærs aðila, verði búist við því að Bretar og Hollendingar taki málið þá upp í anda sanngirni og góðvilja.
|
|
Bréf Gordon Brown til Jóhönnu Sigurðardóttur 13. nóvember |
|
|
Bréf Jóhönnu Sigurðardóttur til Gordon Brown 17. nóvember |
Til baka








Senda inn efni



