Leikur hjá Stabæk til rannsóknar hjá UEFA
Viðureign norska liðsins Stabæk, sem Pálmi Rafn Pálmason leikur með, og KF Tirana frá Albaníu er einn af sjö leikjum sem UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, hefur tekið til frekari rannsóknar í tengslum við svindl og hagræðingu úrslita.
Það eru þó ekki Pálmi og félagar sem liggja undir grun, heldur leikmenn albanska liðsins. KF Tirana er eitt af fimm félögum sem UEFA tilkynnti í dag að væri til sérstakrar rannsóknar vegna málsins, sem snýst um veðmálastarfsemi og mögulegar greiðslur til leikmanna fyrir að hagræða úrslitum.
Stabæk vann umræddan leik í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu næsta auðveldlega, 4:0, en liðin höfðu áður skilið jöfn í Albaníu, 1:1. Pálmi Rafn var varamaður en kom ekkert við sögu í leiknum.
Tvö albönsk félög eru meðal umræddra fimm félaga sem liggja undir grun um misferli. Hitt er Vllaznia. Hin þrjú eru Dinaburg frá Lettlandi, Ljubljana frá Slóveníu og Honvéd frá Ungverjalandi. Sjö leikir með þessum fimm liðum eru til rannsóknar en hinir sex voru allir í forkeppni Evrópudeildar UEFA og voru spilaðir á bilinu 16. júlí til 6. ágúst.
Þessir sjö leikir hafa verið síaðir úr hópi um 40 leikja sem byrjað var að skoða í september. Í síðustu viku gerðu þýskir saksóknarar heyrinkunnugt að þeir væru að skoða í kringum 200 leiki víðsvegar um Evrópu, þar á meðal þessa 40 sem UEFA væri með á sínum lista. Þar af eru 32 leikir í Þýskalandi sjálfu.
Til baka








Senda inn efni

