Mbl-fréttir verða fyrsti sjónvarpsfréttatími kvöldsins
Útsendingartími Mbl frétta á SkjáEinum breytist frá og með deginum í dag. Fréttatími dagsins fer í loftið kl. 18.15 og er svo endursýndur klukkan 19.30.
„Við ákváðum í kjölfar þess að SkjárEinn er nú í læstri dagskrá að breyta útsendingartíma. Það var tæknilega erfitt að halda gamla endursýningartímanum í miðri læstri dagskrá,“ segir Hlynur Sigurðsson fréttastjóri sjónvarpsfrétta mbl.is.
„Breytingin þýðir að við erum fyrsti sjónvarpsfréttatími dagsins klukkan 18.15. Viðtökurnar hafa verið ótrúlega góðar, það er greinilega markaður fyrir snarpar og jákvæðar fréttir,“ segir Hlynur.
Fréttirnar verða sem fyrr aðgengilegar á mbl.is, bæði fréttatíminn í heild og hvert innslag.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni

