[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur

Kristinn Ingvarsson

Innlent | Morgunblaðið | 25.11.2009 | 05:30

Saka Haga um samkeppnisbrot

Samkeppniseftirlitinu hefur borist kvörtun um að Hagar selji vörur undir innkaupsverði í verslunum sínum. Í lok árs 2008 lagði Samkeppniseftirlitið 315 milljóna króna stjórnvaldssekt á Haga fyrir alvarlegt brot á samkeppnislögum.

Í ákvörðuninni er komist að þeirri niðurstöðu að Hagar hafi misnotað markaðsráðandi stöðu á matvörumarkaði með því að selja tilteknar vörur undir kostnaðarverði. Áfrýjunarnefnd staðfesti niðurstöðuna, en Hagar hafa stefnt samkeppnisyfirvöldum fyrir héraðsdóm vegna málsins.

Tilefni rannsóknar stofnunarinnar var undirverðlagning á árunum 2005 og 2006, en þá hóf Krónan markaðssókn. Í kjölfarið hófst verðstríð sem birtist m.a. í því að um tíma var mjólkurlítrinn seldur á eina krónu.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, staðfestir að nýverið hefði borist kvörtun til stofnunarinnar þar sem því væri haldið fram að Hagar seldu enn vörur undir kostnaðarverði. Hann sagði að Samkeppniseftirlitið væri að taka afstöðu til meðferðar á þessari kvörtun. Sjá nánari umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær