Farið verði vel með Bretana fimm
Starfsmannastjóri Mahmoud Ahmadinejad Íransforseta hefur látið hafa eftir sér að verði Bretarnir fimm, sem handteknir voru á Persaflóa undan strönd Írans, fundnir sekir um „illan ásetning“ verði eigu að síður farið vel með þá.
Esfandiar Rahim Mashaie, starfsmannastjóri Mahmoud Ahmadinejad Íransforseta, hefur upplýst dómstólar landsins muni fjalla um mál Bretanna.
„Ef sannað þykir að þessir einstaklingar hafi haft illan ásetning, þá verður tekið með alvarlegum og ákveðnum hætti á brotum þeirra,“ sagði Mashaie. Tók hann fram að stjórnvöld í Íran hefði áður tekið með ákveðnum hætti á fólki sem reynt hafi að "komast til Írans með ólögmætum hætti."
Bresk stjórnvöld hafa ekki viljað deila við írönsk stjórnvöld vegna sjóaranna fimm og hafa með því viljað leggja áherslu að leysa þurfi málið eftir diplómatískum leiðum.
David Miliband, utanríkisráðherra Breta, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið ekki vita annað en að farið væri vel með fimmmenningana. Málið þykir koma upp á afleitum tíma, því samskipti Írana við vesturlöndin er einstaklega slæmt á þessum tímapunkti vegna nýkynntra kjarnorkuáforma Írana.
Bretarnir fimm lögðu upp í kappsiglingu frá Bahrain til Dúbaí á snekkju sem ber heitið Konungsdæmi Bahrain. Þeir voru stöðvaðir á Persaflóa sl. miðvikudag. Talið er að snekkjan hafi stöðvuð nálægt eyjunni Abu Musa, sem Íranar og Sameinuðu furstadæmin deila um yfirráð yfir.
Ekki eru nema rúm tvö ár síðan Íranar handsömuðu 15 breska sjóliða á Persaflóa. Þeim var haldið í þrettán daga en sleppt lausum að þeim tímaloknum. Miliband leggur mikla áherslu á að uppákoman nú sé allt annars eðlis þar sem um óbreytta borgara sé að ræða.
Shirin Ebadi, friðarnóbelsverðlaunahafi frá Íran, hefur mótmælt handtökunni. „Ég skil það þannig að írönsk stjórnvöld hafi handtekið sjóarana án viðvörunar. Það á að sleppa þeim tafarlaust.“
Til baka








Senda inn efni


