

Í rannsóknarnefndinni sitja Sigríður Benediktsdóttir, Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson. Ómar Óskarsson
Innlent | mbl.is | 1.12.2009 | 12:43
Vannst ekki tími til fyrr
Bloggað um fréttina
-
Sveinbjörn Ragnar ÁrnasonGöngum í Afríku sambandið.
-
Axel Þór KolbeinssonAlmenningur bíður í 80 ár.
Nefndarmönnum í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið verður veitt vernd gegn málshöfðun fyrir innlendum dómstólum vegna þess sem hugsanlega mun koma fram í skýrslu nefndarinnar. Jafnfram er áréttað að íslenska ríkið greiddi allan kostnað við rekstur málsins fyrir erlendum dómstóli og eftir atvikum aðrar áfallnar kröfur. Þetta er meðal ákvæða í frumvarpi, sem forsætisnefnd Alþingis hefur lagt fram.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Aðspurð segir Ásta Ragnheiðar Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, að ekki hafi unnist tími til þess að hugsa fyrir þessu þegar lögin um rannsóknarnefndina voru sett á sínum tíma þar sem vinna hafi þurft hratt.
„Rannsóknarnefndin hefur aðgang að mjög viðkvæmum upplýsingum þar sem hagsmunir vegna friðhelgi einkalífs eða fjárhags þurfa að víkja fyrir almannahagsmunum. Samkvæmt frumvarpinu þá er þessari rannsóknarnefnd skylt að upplýsa um þessi atriði í skýrslunni ef ástæða þykir til vegna almannahagsmuna. Þess vegna þarf að verja þá fyrir því að þeir verði sóttir til saka fyrir það,“ segir Ásta.
Ásta bendir á rannsóknarnefndir eða sannleiksnefndir séu viðteknar í nágrannalöndum okkar og tekur fram að horft sé til reynslunnar af þeim við lagasetninguna hér. Tekur hún fram að þar þekkist að hafi nefndirnar aðgang að viðkvæmum persónuupplýsingum sem þeim sé skylt að upplýsa um þá njóti þeir verndar gegn málshöfðun.
Til baka
Innlent — Fleiri fréttir
Í dag
18:56
Fleiri bílar innkallaðir
16:28
Bömmer á myntkörfuláni
15:51
Lýst eftir eigendum muna
14:51
Greiðfært um Suðurland
14:04
35 milljóna króna sekt
13:13
Vefur fyrir ferðamenn
12:30
Senda út athugasemdabréf
10:51
„Alveg skínandi loðna“
10:05
SV-lína áfram á ís
09:05
Útför Steingríms í dag
08:36
Vísa Vítisengli úr landi
05:30
Hagar vafalítið skoðaðir
05:30
Minni niðurgreiðslur
05:30








Senda inn efni