[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík

Innlent | mbl.is | 6.12.2009 | 22:24

Icesave-póstar á Wikileaks

Tölvupóstsamskipti Indriða H. Þorlákssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, og Mark Flanagan, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í málefnum Íslands, frá því í apríl voru í kvöld birt á vefnum Wikileaks en þar er m.a. fjallað um nýja nálgun í Icesave-samningaviðræðunum við Breta og Hollendinga.

Samkvæmt gögnunum á Wikileaks sendi Indriði, sem var í Icesave-samninganefnd Íslands og jafnframt settur ráðuneytisstjóri, Flanagan póst 13. apríl og segir honum að ekki hafi fengist ákveðin svör frá Bretum og Hollendingum um þessa nálgun að öðru leyti en því, að þeir séu tilbúnir til að skoða þessa leið. Hins vegar votti fyrir þvingunartóni í athugasemdum þeirra um að þeir kunni að að nota væntanlega endurskoðun á áætlun Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að knýja fram niðurstöðu sem sé þeim hagfelld.

Indriði segist vilja koma þessum upplýsingum á framfæri við Flanagan í þeirri von að hann kunni að geta haft áhrif á bresk og hollensk stjórnvöld og jafnframt að upplýsa hann um, að það sé ekki pólitískt mögulegt að ná samkomulagi um Icesave-skuldbindingarnar í samræmi við upphaflegar hugmyndir fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl og hugsanlega ekki í talsverðan tíma eftir það.

Flanagan svarar daginn eftir og segist vita að samningaviðræðurnar séu afar viðkvæmt mál á Íslandi og það muni taka tíma að ná niðurstöðu. Hins vegar skipti það máli fyrir endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og erfitt sé að þoka henni áfram fyrr en einhvert samkomulag liggi fyrir milli Íslands annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar.  Sjóðurinn geti hins vegar ekki blandað sér í þær viðræður en muni að sjálfsögðu svara þeim spurningum, sem Bretar og Hollendingar kunni að beina til hans. 

Datt Landsbankaaðferðin í hug 15. apríl

Í viðtali, sem birtist við Svavar Gestsson, sendiherra og formann viðræðunefndar Íslendinga í Icesave-málinu, í júní eftir að upphaflegt samkomulag hafði verið gert við Hollendinga og Breta, segir Svavar að ákveðin tímamót í viðræðunum hafi orðið 15. apríl  þegar formenn samninganefndanna funduðu á heimili Svavars í Kaupmannahöfn.

„Það var í raun úrslitafundur í málinu því þá datt okkur í hug þessi leið sem var farin, að ábyrgðarröðin yrði með þeim hætti að ríkið væri aftast, á eftir Landsbankanum og Tryggingasjóði innstæðueigenda,“ segir Svavar.

Umrædd leið snýst um, að Tryggingasjóður innstæðueigenda sé útgefandi skuldabréfs fyrir allri upphæð Icesave-skuldbindinganna, Landsbankinn beri ábyrgð á greiðslum sjóðsins og íslenska ríkið loks ábyrgð á greiðslum Landsbankans.

Gögn um Rússland

Einnig voru í kvöld birt á Wikileaks gögn um starfsemi þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar í Rússlandi fyrir og eftir síðustu aldamót og málaferli, sem þeir stóðu í við fyrrum viðskiptafélaga sína. 

Tölvupóstar Indriða og Flanagans

Gögn um Rússland 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær