[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Nökkvavogur, 104 Reykjavík Nökkvavogur Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Fálkagata, 107 Reykjavík Fálkagata Reykjavík
Grenimelur, 107 Reykjavík Grenimelur Reykjavík
Hryggjarsel, 109 Reykjavík Hryggjarsel Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Vallarhús, 112 Reykjavík Vallarhús Reykjavík
Sumarhúsalóð, 270 Mosfellsbær Sumarhúsalóð Mosfellsbær

Viðskipti | mbl.is | 11.12.2009 | 18:10

350 milljarða tap Stoða

Bókfært tap Stoða, áður FL Group, síðari hluta ársins 2008, nam 291,2 milljörðum króna en samanlagt bókfært tap móðurfélags og dótturfélaga vegna rekstrarársins 2008 nam 350,6 milljörðum króna.

Fjárhagslegri endurskipulagningu Stoða er nú lokið eftir nauðasamninga, sem gerðir voru við kröfuhafa. Námu heildareignir félagsins 32 milljörðum króna í lok júní 2009 og var eiginfjárhlutfall félagins 69%. Félagið segir að fjármögnun hafi því verið tryggð til langs tíma.

Kröfuhafar Stoða eignuðust fyrr á árinu allt hlutafé í Stoðum en helstu eignir eru 99,1% hlutur í Tryggingamiðstöðinni (TM) og 51% hlutur í evrópska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Meðal annarra eigna Stoða má nefna eignarhluti í Royal Unibrew, Nordicom, Glacier Renewable Energy Fund og Inspired Gaming.

Hluthafar Stoða eru nú 112 talsins. Þrír hluthafar fara með yfir 10% af atkvæðamagni hlutabréfa: Glitnir, NBI og Arion banki. Stjórn Stoða, sem fyrst var kjörin á hluthafafundi þann 17. júlí sl. og endurkjörin á aðalfundi Stoða í dag, skipa Eiríkur Elís Þorláksson, Sigurjón Pálsson og Sigurður Jón Björnsson. Starfsmenn Stoða eru þrír talsins að Jóni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra félagsins, meðtöldum.

Stærstan þátt í tapi félagins árið 2008, u.þ.b. 208 milljarða króna, má að sögn Stoða rekja til afskrifta á eignarhlutum í þremur helstu eignum félagsins á síðasta ári: Glitni, Landic Property og TM. Tap vegna annarra skráðra og óskráðra eigna og hlutabréfa (m.a. í Commerzbank, Inspired Gaming, Royal Unibrew, Nordicom, Atorku, Alfesca, Glacier Renewable Energy Fund, Unity, Þyrpingu, Bayrock og Finnair) nam um 45 milljörðum króna. Vaxtagjöld og neikvæður gengismunur námu um 79 milljörðum króna á umræddu tímabili.

Rekstarkostnaður Stoða árið 2008 nam 2,1 milljarði króna og var 59% lægri en árið 2007. Til samanburðar var rekstarkostnaður Stoða fyrstu sex mánuði þessa árs 133 milljónir króna.

PDF-skrá Tilkynning Stoða
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars