[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Fagribær, 110 Reykjavík Fagribær Reykjavík
Kjarrmóar, 210 Garðabær Kjarrmóar Garðabær
Þingvallavatn-lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Þingvallavatn-lóð Selfoss (dreifbýli)
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Eikardalur, 260 Njarðvík Eikardalur Njarðvík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær

Innlent | mbl.is | 11.12.2009 | 18:01

Bullundirskriftir raktar til stjórnarráðsins

„Síðustu daga hefur borið nokkuð á fölskum undirskriftum þar sem nöfn á borð við Gordon Brown, Barack Obama og Davíð Oddsson hafa ratað inn á undirskriftarlistann okkar,“ segir Ólafur Elíasson, tónlistarmaður og talsmaður samtakanna InDefence.

Samtökin safna sem kunnugt er undirskriftum þar sem skorað er á forseta Íslands að hafna nýjum Icesave-lögum og vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Að sögn Ólafs eru bullundirskriftir reglulega hreinsaðar út af undirskriftalistanum auk þess sem tölvunarfræðingar innan hópsins hafi rakið IP-tölur þeirra tölva þaðan sem slíkar undirskriftir koma sem og lén þeirra.

„Það sem hefur vakið furðu okkar er að stjórnarráðslén kemur upp sem og lén Fréttablaðsins, RÚV og Hagstofu Íslands. Þetta kemur sem sagt út tölvum sem er á þeirra vef,“ segir Ólafur. Aðspurður segir Ólafur ekki hægt að rekja nákvæmlega úr hvaða ráðuneyti skráningarnar berast, aðeins að þær komi úr stjórnarráðinu.

„Manni dettur helst í hug að þetta sé tilraun til þess að gera söfnunina ótrúverðuga, en það mun ekki takast því það verður svo mikið eftirlit með listanum,“ segir Ólafur og tekur fram að bullundirskriftirnar séu innan við 0,5% þeirra undirskrifta sem safnast hafa.

Nú síðdegis höfðu rúmlega 33 þúsund manns skrifað undir áskorun InDefence hópsins. Að sögn Ólafs mun óháður aðili fara yfir undirskriftalistann áður en hann verður afhentur forseta Íslands, auk þess sem listinn verður samkeyrður Þjóðskrá.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag