[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Laugavegur, 101 Reykjavík Laugavegur Reykjavík
Njálsgata, 101 Reykjavík Njálsgata Reykjavík
Ægisgata, 101 Reykjavík Ægisgata Reykjavík
Dalbraut, 105 Reykjavík Dalbraut Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Tungusel, 109 Reykjavík Tungusel Reykjavík
Ásbraut, 200 Kópavogur Ásbraut Kópavogur
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Lambafell, 861 Hvolsvöllur (dreifbýli) Lambafell Hvolsvöllur (dreifbýli)
Í frétt RÚV segir að samþykki Alþingi ekki ríkisábyrgð vegna Icesave muni pólitískur þrýstingur aukast mjög á Íslendinga. Bretar og Hollendingar myndu að líkindum reyna að innheimta skuldina fyrir dómstólum og ef þeir myndu vinna málið yrðu lánakjör Íslendinga verri en í núverandi samningi.

Í frétt RÚV segir að samþykki Alþingi ekki ríkisábyrgð vegna Icesave muni pólitískur þrýstingur aukast mjög á Íslendinga. Bretar og Hollendingar myndu að líkindum reyna að innheimta skuldina fyrir dómstólum og ef þeir myndu vinna málið yrðu lánakjör Íslendinga verri en í núverandi samningi. Ómar Óskarsson

Innlent | mbl.is | 19.12.2009 | 19:52

Breytt löggjöf hefur ekki áhrif á Icesave

Þótt Evrópulöggjöf um ábyrgð ríkja á innistæðum í bönkum verði breytt, hefur það enginn áhrif á Icesave-samninginn. Hann er óháður slíkum breytingum, jafnvel þótt þær séu Íslendingum í hag. Þetta kemur fram í áliti breskrar lögmannsstofu til fjárlaganefndar Alþingis. Fréttastofa RÚV sagði frá þessu í kvöldfréttum.

Fjárlaganefnd leitaði til bresku lögmannsskrifstofunnar Ashurst, með nokkrar spurningar um Icesave samningana.

Í álitinu segir að viðaukasamningurinn sem gerður var í október sé að mestu leyti hefðbundinn og sambærilegur öðrum alþjóðlegum lánasamningum. Hið óhefðbundna snúi að Icesave málinu sem slíku, að greiðslur haldi áfram eftir 2024 ef lánið verður ekki greitt að fullu, endurskoðunarákvæðinu og fleiru. Þessi atriði séu Íslandi í hag. Það sé ennfremur eðlilegt að gert sé út um ágreiningsmál fyrir breskum dómstólum.

Lögfræðistofan var beðin að svara því hvort mögulegar breytingar á Evrópulöggjöfinni, Íslandi í hag, um ábyrgð ríkisins á innistæðum geti haft áhrif á samninginn. Svarið er nei. Ashurst lögmennirnir telja að skyldur Tryggingasjóðs innstæðueigenda og ábyrgð ríkisins á honum standi, þrátt fyrir slíkar lagabreytingar sem kunna að vera gerðar í framtíðinni.

Enn á eftir að berast álit frá bresku lögmannsstofunni Michon de Reya um sama mál.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 13. mars