Íþróttir | mbl.is | 19.12.2009 | 23:27
Tvær tennur festust í olnboganum á Nowitzki (myndband)
Þýski landsliðsmaðurinn Dirk Nowitzki varð fyrir undarlegum meiðslum í tapleik Dallas Mavericks gegn Houston Rockets aðfaranótt laugardags. Carl Landry leikmaður Houston fékk hægri olnbogann á Nowitzki af miklu afli í andlitið í einni sókn Dallas. Um óviljaverk var að ræða og losnuðu þrjár tennur í Landry. Hann yfirgaf völlinn og kom ekki meira við sögu en Nowitzki var einnig úr leik þar sem að tvær tennur úr Landry festust í olnboga hans.
Houston hafði betur í leiknum, 116:108, en hér má sjá myndband af atvikinu.
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
Til baka
Íþróttir / Körfubolti — Fleiri fréttir
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
07:50
Blóðtaka hjá Njarðvík
Fimmtudaginn 18. mars
20:42
Góður sigur Stólanna
Miðvikudaginn 17. mars
20:58
KR komið í vænlega stöðu
Þriðjudaginn 16. mars
15:25








Senda inn efni



