[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Birkir Bjarnason.

Birkir Bjarnason. mbl.is/Kristinn

Íþróttir | mbl.is | 22.12.2009 | 18:36

Birkir bestur hjá Viking Stavanger

Birkir Bjarnason, leikmaður með 21-árs landsliði Íslands í knattspyrnu, hefur verið útnefndur „Víkingur ársins“ í kosningu lesenda Rogalands Avis, sem kusu hann þar með besta leikmann úrvalsdeildarliðsins Viking frá Stavanger á árinu 2009.

Birkir var í stóru hlutverki hjá Viking í ár. Hann lék alla 30 leiki liðsins í úrvalsdeildinni, sem miðjumaður, og skoraði í þeim 7 mörk. Í umfjöllun Rogalands Avis segir að Birkir hafi verið einn af fáum leikmönnum sem stóðu uppúr í annars bitlausu liði Viking á árinu. Kjör hans komi því ekki á óvart en Birkir fékk 34 prósent atkvæða frá lesendum. Annar varð Thomas Myhre, fyrrum landsliðsmarkvörður Noregs, með 29 prósent atkvæða.

„Þó liðinu hafi gengið illa í ár gekk mér sjálfum ágætlega. Þetta var dýrmætt tímabil fyrir mig, nú náði ég að sýna mig og sanna," sagði Birkir við Rogalands Avis. Hann var lánaður frá félaginu árið 2008 og spilaði þá með Bodö/Glimt. Birkir er 21 árs gamall og hefur verið í aðalliðshópi Viking frá 18 ára aldri.

Þess má geta að faðir Birkis, Bjarni Sveinbjörnsson, var drjúgur markaskorari með Þór á Akureyri á sínum tíma og er markahæsti leikmaður Akureyrarfélagins í efstu deild frá upphafi með 42 mörk í 114 leikjum. Systir Birkis, Björg Bjarnadóttir, hefur leikið með Klepp í norsku úrvalsdeildinni undanfarin sex ár.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Sunnudaginn 7. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars