Skjöl FBI um Michael Jackson opinberuð
Bandaríska alríkislögreglan opinberaði í dag mörghundruð blaðsíður af skjölum sem tengjast poppgoðinu Michael Jackson. Kemur þar fram að alríkislögreglan kom að rannsóknum á meintri kynferðislegri misnotkun Jacksons á börnum á búgarði hans, Neverland. Rannsóknirnar og réttarhöld í framhaldinu stóðu frá 1993 til 2005, en þeim lauk þannig að Jackson var sýknaður af öllum ákæruatriðum.
Skjölin telja meira en þrjú hundruð síður. Þau innihalda þó engar nýjar upplýsingar um dauðdaga Jacksons, sem er nú viðfangsefni opinberrar rannsóknar. Rannsóknin beinist að einkalækni Jacksons, Conrad Murray.
Hins vegar sýna gögnin að árið 1992 varð poppkóngurinn fyrir því að maður einn sat um hann öllum stundum og hótaði að myrða hann. Maðurinn hélt því einnig fram, ranglega, að hann væri sonur John Gotti, frægs mafíósa frá New York.
Ein skráin í bunkanum tengdist fyrirspurn frá 1995, frá tolleftirlitsmanni í Flórída, sem óskaði eftir greiningu á VHS myndbandsspólu sem tengdist Jackson. Vildi hann fá úr því skorið hvort á spólunni væri barnaklám.
Sérfræðingar komust að þeirri niðurstöðu að spólan, sem var merkt með heitinu ,,Uppáhöld Michaels Jacksons frá Neverland - Úrvalssafn tileinkað drengjum" (e. Michael Jackson's Neverland Favorites - An All Boy Anthology) væri í lélegum gæðum og væri búið að afrita oft. Í skjölunum frá alríkislögreglunni kemur ekki fram hvað, ef eitthvað, sást á spólunni.
Jackson lést í júní síðastliðnum, þá fimmtugur að aldri, eftir að hafa tekið ofskammt af lyfseðilsskyldum lyfjum.
Til baka








Senda inn efni


