[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ægisgata, 101 Reykjavík Ægisgata Reykjavík
Lambafell, 861 Hvolsvöllur (dreifbýli) Lambafell Hvolsvöllur (dreifbýli)
Tungusel, 109 Reykjavík Tungusel Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Njálsgata, 101 Reykjavík Njálsgata Reykjavík
Laugavegur, 101 Reykjavík Laugavegur Reykjavík
Ásbraut, 200 Kópavogur Ásbraut Kópavogur
Dalbraut, 105 Reykjavík Dalbraut Reykjavík
Frá Alþingi

Frá Alþingi mbl.is/Heiðar

Innlent | mbl.is | 22.12.2009 | 20:49

Svik við samkomulag flokkanna

Sjálfstæðismenn, líkt og Framsóknarmenn, líta svo á að samkomulag það sem tókst á milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu um störf þingsins fram að jólum, hafi verið svikið í dag. Icesave-frumvarpið var afgreitt úr fjárlaganefnd án þess að viðeigandi gögn, meðal annars skýrsla frá IFS-greiningu, hefðu borist.

Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd mótmæla harðlega þessu verklagi, þar sem mjög mikilvæg gögn hafi verið að berast nefndinni fram á síðustu stundu og engin efnisleg meðferð hafi farið fram.

„Hér á Alþingi hafa farið fram stöðugar umræður og atkvæðagreiðslur um grundvallarbreytingar á skattkerfi landsmanna auk fjárlagafrumvarps næsta árs, fyrir utan önnur viðfangsefni. Ofan í þetta er fulltrúum í fjárlaganefnd ætlað að taka afstöðu til þessa gríðarlega mikla hagsmunamáls sem Icesave málið er. 

Það er útilokað fyrir alþingismenn í þessum önnum að kynna sér til hlítar þessi gögn sem lögð hafa verið fram og því síður tækifæri til umræðu um efnislega meðferð og afgreiðslu. Engin efnisleg rök hafa verið færð fram um það að nauðsynlegt sé að ljúka málinu nú.  Að mati sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd er ábyrgðarlaust að halda svona á hagsmunum Íslendinga í nútíð og framtíð og vísa þeir ábyrgð á þessari málsmeðferð á hendur ríkisstjórn og meirihluta fjárlaganefndar," segir í bókun sjálfstæðismanna frá því á fundi fjárlaganefndar í dag.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 13. mars