[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Veröld/Fólk | mbl.is | 3.1.2010 | 19:22

Tekjur af Avatar yfir 1 milljarður dala

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Tekjur af sýningu bandarísku stórmyndarinnar fóru um helgina yfir 1 milljarða dala en myndin hefur nú verið sýnd í þrjár vikur. Er myndin nú þegar orðin fjórða tekjuhæsta mynd sögunnar, samkvæmt gögnum sem birt voru í dag.

Margir sáu myndina, sem James Cameron hefur unnið að árum saman, nú um áramótin og nema tekjur af henni nú 1,02 milljörðum dala. Þær myndir, sem aflað hafa meiri tekna, eru Titanic, sem  Cameron gerði einnig en tekjur af henni námu 1,8 milljörðum dala, síðasta mynd Hringadróttinssögu: Hilmir snýr aftur, sem aflaði 1,12 milljarða dala tekna og sjóræningjamyndin Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest, sem aflaði 1,07 milljarða dala tekna.

Alls greiddu norður-amerískir bíógestir 68,3 milljónir dala fyrir að sjá Avatar um helgina og er þetta met þegar um er að ræða mynd sem búið er að sýna í þrjár vikur.  Gamla metið setti Köngulóarmaðurinn árið 2002, 45 milljónir dala.

Avatar, tölvuunnin framtíðarþrívíddarmynd, var sú langtekjuhæsta í Norður-Ameríku um helgina og aflaði 68,3 milljóna dala tekna. 

Myndin Sherlock Holmes, með Robert Downey Jr. í aðalhlutverkinu, var í 2. sæti með 38,4 milljóna dala tekjur en myndin var frumsýnd fyrir 10 dögum. Teiknimyndin Alvin and the Chipmunks: The Squeakquel, var í 3. sæti.

Í næstu sætum voru myndirnar It's Complicated, með Meryl Streep, Alec Baldwin og Steve Martin í aðalhlutverkum, The Blind Side, með Söndru Bullock,  Up in the Air, Prinsessan og froskurinn,  Did You Hear About the Morgans? Nine og Invictus.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars