[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 10.3.10
9 22 33 36 37 38
10 34   39
Jóker
7 7 4 3 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Álafossvegur, 270 Mosfellsbær Álafossvegur Mosfellsbær
Leirubakki, 109 Reykjavík Leirubakki Reykjavík
Hagasel, 109 Reykjavík Hagasel Reykjavík
Miðtún, 104 Reykjavík Miðtún Reykjavík
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Kópalind, 201 Kópavogur Kópalind Kópavogur
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Ásbúðartröð, 220 Hafnarfjörður Ásbúðartröð Hafnarfjörður
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Hagasel, 109 Reykjavík Hagasel Reykjavík
Aron Einar Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson Eggert Jóhannesson

Íþróttir | Morgunblaðið | 8.1.2010 | 09:22

Aron Einar: „Kominn í frábært form“

Eftir Guðmund Hilmarsson, gummih@mbl.is

„Það er lítið að gerast í samningamálunum. Ég er hins vegar alveg rólegur. Mér líður vel í Coventry og held bara áfram að standa mig vel. Það náðust ekki samningar á milli mín og félagsins í haust og ég veit ekki hvað forráðamenn liðsins eru að hugsa, hvort þeir séu að bíða eftir því að lið komi með tilboð í mig eða ætli að bjóða mér nýjan og bættan samning,“ sagði landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson leikmaður enska 1. deildarliðsins Coventry við Morgunblaðið í gær.

Aron á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Coventry sem hann gekk til liðs við frá hollenska liðinu AZ Alkmaar. Aron átti afar góðu gengi að fagna með enska liðinu á sinni fyrstu leiktíð. Hann var fastamaður í liðinu og var eftir tímabilið útnefndur leikmaður ársins hjá félaginu.

Aron var inntur eftir því hvort hann sæi fyrir sér að fara frá Coventry núna í janúarglugganum.

„Maður veit aldrei hvað gerist. Ef eitthvað kemur upp þá held ég að Coventry skoði það. Coventry er félag sem er byggt upp á ungum leikmönnum og ef því býðst gott tilboð í leikmenn þá selur það þá. Ég væri meira en til í að skoða það ef eitthvað tilboð kæmi upp á borðið.“

Nánar er rætt við Aron Einar í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars