Erfitt en vorum með tak á leiknum
„Þetta var erfitt hjá okkur en mér fannst við hafa þó tak á leiknum lengst af en vissulega hefði ég viljað sjá mína menn gefa aðeins í ná meira forskoti en raun varð á,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir sigur á Stjörnunni, 24:19, í N1-deild karla í handknattleik í Vodafone-höllinni í kvöld. Með sigrinum komst Valur upp í annað sæti deildarinnar en er sem fyrr þremur stigum á eftir Haukum sem tróna á toppnum.
„Við vorum klaufar að gera ekki betur í sókninni. En varnarleikurinn og markvarslan var fín og við fengum aðeins á okkur nítján mörk. Það er mjög gott,“ sagði Óskar sem saknaði Fannars Friðgeirssonar úr Valsliðinu í kvöld. Fannar brákaði rifbein í kappleik við Gróttu í síðustu viku. Þá var Ernir Hrafn Arnarson ekki heldur með vegna bólgu í hné. Baldvin Þorsteinsson hóf leikinn með Val en hann hefur verið lengi frá vegna axlarmeiðsla. Baldvin fann hins vegar fyrir tognun í nára og fór snemma af leikvelli.
Hlynur Morthens, markvörður Vals, varði 20 skot í kvöld, þar af þrjú vítaköst og reyndist Stjörnumönnum óþægur ljár í þufu. „Hlynur hefur verið mjög jafngóður í öllum leikjum okkar í vetur að einun undanskildum og þá var hann veikur af svínaflensu. Hann hefur verið okkar jafnbesti leikmaður í vetur," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.
Nánar verður fjallað um viðureign Vals og Stjörnunnar í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.
Til baka








Senda inn efni



