Fundu Svörtu ekkjuna við Njarðvíkurhöfn

Köngulóin var ekki stór en var með áberandi rauðan blett …
Köngulóin var ekki stór en var með áberandi rauðan blett á kviðnum. mbl.is/Hilmar Bragi.

Þrír starfsmenn Skipaafgreiðslu Suðurnesja, þeir Vilhjálmur Vilhjálmsson, Gunnar Hafsteinn Sverrisson og Þorsteinn Grétar Snorrason, fundu baneitraða könguló, hina svokölluðu Svörtu ekkju, þar sem þeir voru að störfum í skipi í Njarðvíkurhöfn í dag. Áttfætlan sem þeir félagar fönguðu við gám ber saman við myndir af Svörtu ekkjunni. Köngulóin var ekki stór en var með áberandi rauðan blett á kviðnum, sem jafnframt er sérkennilegur í lögun.

Þeir félagar voru ekki vissir um hvað þeir ætluðu að gera við gripinn en þáðu ábendingar um að fara með Svörtu ekkjuna til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja eða lögreglunnar, að því er fram kemur á fréttavef Víkurfrétta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert