Ræninginn í Íslandsbanka gripinn fljótt

Fjölmennt lið lögreglu dreif strax á vettvang við Eiðistorg. Lögregluþjónn …
Fjölmennt lið lögreglu dreif strax á vettvang við Eiðistorg. Lögregluþjónn heldur hér á poka með ránsfengnum eftir handtöku manns í strætisvagnaskýlinu á myndinni. mbl.is/Júlíus

Bankarán var framið í útibúi Íslandsbanka við Eiðistorg rétt í þessu og hefur lögregla gripið til víðtækra ráðstafana á vettvangi og í nágrenni hans. Maður, sem talinn var um eða rúmlega tvítugt, stökk inn fyrir borð í gjaldkerastúku og greip ótilgreinda fjármuni. Ungur maður hefur verið handtekinn í strætisvagnaskýli skammt frá og er hann grunaður um verknaðinn.

Lögregla ræðir við vegfarendur í nágrenni Eiðistorgs vegna bankaránsins.
Lögregla ræðir við vegfarendur í nágrenni Eiðistorgs vegna bankaránsins. mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert