Þetta var algjört maraþon maraþonhlaup. Heilum 29 klukkustundum og fjörutíu og fimm mínútum eftir að hún hljóp af stað og rúmum 27 klukkustundum eftir að sigurvegari hlaupsins kom í mark, gekk Zoe Koplowitz, loks á hækjum sínum yfir markalínuna í maraþonhlaupi New York-borgar í dag.
„Ég er gagntekin fögnuði. Ég er óskaplega fegin að geta sest niður,“ sagði Koplowitz, sem þjáist af sykursýki og MS-veiki, eftir að hún lét sig falla á stól rétt aftan við markalínuna í Miðgarði. „Ég gæfi heilt konungsríki fyrir tvær verkjatöflur,“ bætti hún við. Þetta er í 16. sinn sem Koplowitz tók þátt í maraþonhlaupi New York. Hún tók fyrst þátt árið 1988 og náði þá bestum tíma, innan við 20 klst. MS-sjúkdómurinn er hrörnunarsjúkdómur.