Könnun SI á verði heimilisvara: Íslenska karfan ódýrari en sú erlenda

Matvæli eru uppistaða í útgjöldum heimila.
Matvæli eru uppistaða í útgjöldum heimila. mbl.is/Jim

Samanlagt meðalverð íslenskra vara í verðkönnun sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins (SI) í fjórum verslunum á höfuðborgarsvæðinu 22. júlí síðastliðinn, reyndist 10,3% lægra en í sambærilegri erlendri körfu, að því er fram kemur í tilkynningu frá SI.

Þar segir að þessi niðurstaða sé athyglisverð í ljósi niðurstaðna könnunar IMG Gallups fyrir Samtök iðnaðarins frá í vor þar sem 83,7% töldu verð íslenskra matvara almennt hærra en á hliðstæðum erlendum matvörum.

„Verðkönnun SI var gerð í verslunum Hagkaupa, Nóatúns, Fjarðarkaupa og Samkaupa. Valdar voru almennar neysluvörur til heimilisnota í ýmsum vöruflokkum og þess vandlega gætt að velja eins sambærilegar vörur og kostur var. Reiknað var meðalverð hverrar vöru í verslununum fjórum. Þegar um þyngdarmun eða mismunandi magn var að ræða var verð varanna umreiknað til að það yrði samanburðarhæft,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að kannað hafi verið verð á 23 vörutegundum og hafi meðalverð íslensku varanna reynst lægra í 13 tilvikum.

„Heildarverð innkaupakörfunnar með íslensku vörunum var 4.710 krónur en verð erlendu körfunnar 5.195 krónur. Mismunurinn var 485 krónur eða 10,3%.

Í könnun IMG Gallup í vor kom í ljós að 83,7% svarenda töldu að íslenskar vörur væru dýrari en sambærilegar erlendar voru, 13,8% töldu verðið svipað en 2,5% að íslensku vörurnar væru ódýrari. „Þótt hér sé spurt um matvörur gefur könnunin vísbendingar um viðhorf Íslendinga. Verðkönnun SI frá í sumar gefur hins vegar vísbendingar um hið gagnstæða,“ segir í tilkynningu SI.

Þar segir að samskonar verðkönnun hafi verið gerð á vegum átaksins Íslenskt, já takk árið 1995. Tilefnið þá hafi, eins og nú, verið könnun IMG Gallups sem sýndi að 70% íslenskra neytenda töldu að íslenskar vörur væru dýrari en erlendar.

„Niðurstaða verðkönnunarinnar 1995 leiddi í ljós að íslensku vörurnar reyndust 17% ódýrari að meðaltali,“

Í tilkynningunni segir að þótt heildarverðmunurinn sé minni nú en 1995 sé vert að líta til þeirrar staðreyndar að gengi krónunnar sé mun sterkara nú og samkeppnisstaða innlendrar framleiðslu erfiðari en fyrir níu árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert