Afsláttur af sorphirðugjaldi ef sjaldnar er hirt

Frá sorphaugum Sorpu í Álfsnesi.
Frá sorphaugum Sorpu í Álfsnesi.

Þeir borgarbúar sem sætta sig við sorphreinsun á tveggja vikna fresti geta lækkað sorphirðugjöld sín um 35% nái tillögur nefndar um mótun stefnu í úrgangsmálum fram að ganga. Voru tillögur nefndarinnar kynntar í borgarráði í dag.

Borgarráð hefur þegar staðfest þá stefnumörkun nefndarinnar að hætta hirðingu fyrirtækjasorps um næstu áramót, en þær tillögur sem kynntar voru í dag ná til heimilissorpsins.

Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra, að í samræmi við þá stefnumótun löggjafans að sorphirðugjöld endurspegli kostnað við sorphirðuna, sé lagt til að niðurgreiðslu þjónustunnar verði hætt og verð vikulegrar sorphirðu hækki um 30%. Hins vegar bjóðist fólki 50% afsláttur af sorphirðugjöldum sætti það sig við að tunnurnar séu tæmdar sjaldnar. Það þýði að kjósi fólk óbreytta þjónustu hækka gjöldin um 30% frá því sem nú er, í 9.700 kr. á ári, en lækka um 35% með minni tíðni. Þá geri tillögurnar ráð fyrir að komið verði á móts við þá sem kjósa minni tíðni losunar með bættu aðgengi að grenndargámastöðvum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert