Bush: Leifur Eiríksson, sonur Íslands og sonarsonur Noregs

Stytta Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholti.
Stytta Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholti.

George W. Bush, Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir í gær að 9. október ár hvert verði dagur Leifs Eiríkssonar, sonar Íslands og sonarsonar Noregs, eins og segir í yfirlýsingunni. Hvetur Bush alla Bandaríkjamenn til að heiðra norræna arfleifð í Bandaríkjunum með hátíðarhöldum hverskonar.

Í yfirlýsingu, sem birt er á heimasíðu Hvíta hússins, segir að fyrir rúmum 1000 árum hafi Leifur Eiríksson og menn hans siglt yfir Atlantshafið og orðið fyrstu Evrópumennirnir til að stíga á land í Norður-Ameríku. Í október ár hvert sé þessa hugrakka víkings og sögufrægrar siglingar hans minnst í Bandaríkjunum.

Þá segir að innflytjendur frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð og afkomendur þeirra hafi lagt mikið að mörkum í Bandaríkjunum, svo sem á sviði viðskipta, stjórnmála, lista og menntunar. Norrænir Bandaríkjamenn hafi einnig tekið þátt í að móta þjóðfélag og menningu landsins. Orka þeirra og bjartsýni hafi örvað aðra til dáða og hugrekki þeirra, hæfileikar og áræðni hafi leikið mikilvægt hlutverk í þróun Bandaríkjanna. Nú geti milljónir Bandaríkjamanna rakið uppruna sinn til norrænna landa.

Yfirlýsing Hvíta hússins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert