Menntaskólanemi í Pennsylvaníu hefur verið dæmdur í allt að 2 ára fangelsi fyrir að hlaupa berrassaður yfir svæðið þar sem stúdentaútskrift fór fram.
Russell Chmieleski, 18 ára, játaði á sig ósiðlegt athæfi og var dæmdur í 6-24 mánaða fangelsi. Pilturinn fær að afplána dóminn í sýslufangelsi og þarf ekki að fara í ríkisfangelsi.
Dómurinn er svona þungur, vegna þess að börn voru viðstödd þegar Chmieleski hljóp allsnakinn yfir ruðningsvöllinn þar sem verið var að útskrifa nemendur frá menntaskólanum í Towanda í júní.
Lögregla segir, að Chmieleski hafi tekið það nærri sér að fá ekki að vera viðstaddur útskriftarathöfnina þar sem hann útskrifaðist frá skólanum í janúar.