Lögregla sögð hafa farið að fyrirmælum fréttastjóra vegna misskilnings

Bobby Fischer við einkaþotuna á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi.
Bobby Fischer við einkaþotuna á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. mbl.is

Stuðninsnefnd Bobby Fischers hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að mótttökuathöfn vegna komu Bobby Fischer til landsins hafi farið úr böndunum vegna afskipta fréttastjóra Stöðvar 2 og það hljóti að vera algjört einsdæmi að fréttamiðill taka atburðarásina í eigin hendur af skipuleggjendum og stýri framvindu atburðar til að geta setið einn að hitunni.

Yfirlýsingin, sem Einar S. Einarsson, fyrrum formaður Skáksambands Íslands, sendi blaðamanni Fréttavefjar Morgunblaðsins, fer í heild sinni hér á eftir:

„Eins og fréttamenn ykkar og aðrir viðstaddur tóku eftir fór mótttökuathöfn við komu Bobby Fischer og unnustu hans Miyoko Watai því miður úr skorðum og öll úr böndum vegna afskipta fréttastjóra Stöðvar 2, Páls Magnússonar, en aðilar á hennar vegum kostuðu einkaþotu sem flutti Fischer til landsins.

Það hlýtur að vera algjört einsdæmi að fréttamiðill taka atburðarásina i eigin hendur af skipuleggjendum og stýri framvindu atburðar til að geta setið einn að hitunni.

Þannig var lagt fyrir Fischer að strunsa fram hjá velunnurum sínum í móttökunefndinni beint að bifreið sem stóð tilbúnin skammt frá flugvélinni svo aðrir fréttamiðlar, ljósmyndarar, sjónvarpsstöðar næðu sem fæstum myndum af því er hann steig á íslenska grund. Var honum og fylgdarmönnum hans síðan ekið á brott og farið með hann í smárúnt um nágrennið.

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjón sem var á vettvangi ásamt mönnum sínum, hafði látið girða komusvæði af með gulum limböndum og gert sitt til að hafa gott skipulag á hlutunum fyrirfram. Þegar vélin var lent fór þetta svo allt öðruvísi en ráð var fyrir gert því Geir Jón misskildi hlutina og tók við fyrirmælum frá fréttastjóra Stöðvar 2 (kostendum flugvélarinnar) en ekki frá Fischer nefndinni, sem unnið hefur að frelsun Fischer og stóð fyrir komu hans til landsins og smámóttökuathöfn án ræðuhalda.

  Eftir að hafa farið um borð um þotuna með tollvörðum kom Geir Jón til baka með þau skilaboð að Fischer væri svo örþreyttur að hann treysti sér ekki til að taka í hönd okkar sjö sem biðu hans til að bjóða hann velkominn, í umboði stjórnvalda, sem veitt höfðu honum ríkisborararétt.

   Síðan gerist það að þegar Fischer gekk niður landganginn að enginn annar en fréttamaður Stöðvar 2 hljóp fram og fram hjá lögreglunni og til Fischers og fór að spyrja hinn „örþreytta” ferðalang spurninga. Við þetta riðlaðist allt skipulag og fleiri hlupu fram og inn á hið afmarkaða svæði þannig að lögreglan réð ekki við neitt.

Til hafði staðið að móttökunefndun afhenti Fischer ríkisfangsbréf sitt, sem táknrænan vott þess að hann væri orðinn Íslendingur, en af því varð ekki og það bíður því betri tíma.

Þau skilaboð voru hins vegar látin ganga til okkar stuðningsmannanna að Fischer myndi koma aftur og yrði á hótel Loftleiðum eftir 15-20 mínútur og þá gæti mótttökuathöfnin hitt hann út af fyrir sig. Þetta gekk eftir.

Stöðvar 2 menn, sem höfðu nánast rænt kappanum um stundarsakir komu með Fischer aftur að flugvélinni og mynduðu hann þar einir fréttastofa, þegar hann gekk á land í annað sinn, eftir að aðrir fréttamiðlar voru búnir að pakka saman og horfnir af vettvangi.

  Eftir það kom Fischer ásamt Sæmundi góðvini sínum inn á Hótel Loftleiðir og heilsaði öllum sem þar biðu hans með virtum og var hinn hressasti og síður en svo að niðurlötum kominn. Hann var þó auðvitað þreyttur og feginnn því að komast í svítuna sína góðu sem hann gisti árið 1972 til að taka á sig ró.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert