Eva sást kyssa fyrirsætu

Longoria á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag.
Longoria á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. AP

Fregnir herma að Eva Longoria, ein leikkvennanna í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdar eiginkonur, eigi nú vingott við fyrirsætuna Sean Faris. Mun hafa sést til hennar þar sem hún kyssti hann er þau mættu til verðlaunahátíðar, að því er Ananova greinir frá.

Longoria hefur áður átt vingott við JC Chasez, söngvara N'Sync, og körfuboltamanninn Tony Parker. Hún skildi við bandaríska sápuóperuleikarann Tyler Christopher í fyrra. Faris er 23 ára, og sé það rétt að Longoria eigi vingott við hann er hún þó samkvæm sjálfri sér því að fyrir ekki löngu sagði hún í viðtali við tímaritið Self:

„Ég hefði áhuga á að deita menn sem eru komnir yfir fertugt eða eru yngri en 25 ára. Eldri menn eru ekki að reyna að sýna neitt eða sanna. Þeir vita hvað þeir vilja. Strákar sem eru yngri en 25 ára eru tilbúnir til að hlusta og læra. Gallinn við menn sem eru 25-35 ára er að þeir halda að þeir viti hverjir þeir eru, en þeir vita það í rauninni ekki.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant