Kaþólska kirkjan í Bretlandi hefur gripið til óvenjulegra ráða í tilraunum til að hvetja menn til að læra til prests. Ætlar kirkjan að láta prenta auglýsingar á glasamottur og dreift þeim til kráa á Englandi og í Wales.
Prestum hefur farið mjög fækkandi í bresku kaþólsku kirkjunni og hefur verið ákveðið að hefja áróðursherferð til að hvetja breska kaþólska karlmenn til að læra til prests. Auk auglýsinga á glasamottunum verða birtar auglýsingar á veggspjöldum á neðanjarðarlestarstöðvum í Lundúnum.
Kaþólskum prestum í Bretlandi hefur fækkað úr 850 árið 1990 í 600 á þessu ári og er búist við að þeim fækki í um 470 á næsta áratug.