Teri Hatcher vill ekki vera í bikiníi

Teri Hatcher.
Teri Hatcher. AP

Teri Hatcher hefur greint frá því að hún vilji alls ekki vera í bikiníi og sé alltaf í sundbol.

Frá þessu greinir Ananova, og segir ennfremur, að þótt Hatcher hafi „vöxt sem flestir myndu selja ömmu sína fyrir“, segist hún ákaflega óörugg með líkama sinn.

„Kannski myndu einhverjir segja að ég sé sæt, en það myndu jafn margir segja að rassinn á mér lafi dálítið,“ er haft eftir henni.

Ananova hefur orð á því að Hatcher hafi greinilega mikinn áhuga á að ræða eigin líkamshluta, því að í síðustu viku hafi hún farið mikinn um það að sjónvarpsstjórar hafi eytt þúsundum dollara í að þurrka geirvörturnar á henni úr upptökunni þannig að ekki sæist móta fyrir þeim í gegnum fötin.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson