Ekkert lát á straumi ólöglegra innflytjenda frá Afríku

AP

Ekkert lát er á straumi ólöglegra innflytjenda sem reyna að sigla frá Afríku til Evrópu, oft á ótraustum heimasmíðuðum fleytum. Í morgun kom 68 manna hópur t.d. að suðurströnd Spánar eftir siglingu frá Afríku. Lögregla í Almera handtók fólkið og kom því fyrir í búðum þar til ákvörðun verður tekin um hvaða meðferð það hlýtur. Á myndinni sést hluti af hópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert