Vörubíll með tengivagn fauk á hliðina á Kjalarnesi

Vörubílinn á hliðinni á Kjalarnesi.
Vörubílinn á hliðinni á Kjalarnesi. mbl.is/TB

Vörubíll með tengivagn fauk á hliðina í snarpri vindhviðu við Móa á Kjalarnesi um áttaleytið í kvöld. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss til skoðunar en meiðsl hans voru ekki alvarleg. Lögreglan telur bílinn með tengivagni og farmi vega um 40 tonn, en verið var að flytja steinull og mjólkurvörur. Lögreglan varar við miklu hvassviðri á Kjalarnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert