Tæplega 400 ökumenn teknir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngunum um helgina

391 ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum um helgina. Brot þeirra náðust á svokallaðar hraðamyndavélar sem þar eru staðsettar. Allir þessir ökumenn eiga sekt yfir höfði sér segir í tilkynningu frá lögreglunni í Reykjavík.

Annars staðar í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík var 51 ökumaður tekinn fyrir hraðakstur og 15 fyrir ölvunarakstur. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu var samt að mestu áfallalaus. Þá er undanskilið alvarlegt umferðarslys sem varð á Suðurlandsbraut á föstudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert