Ekki mikil hætta á ferðum þrátt fyrir vélarbilun

Ekki er talið að mikil hætta hafi verið á ferðum þegar farþegaþota lenti í Keflavík síðdegis vegna bilunar í hreyfli. Var þó öllum áætlunum um slík tilvik fylgt og var því nokkur viðbúnaður þegar vélin lenti heilu og höldnu skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Um 170 manns voru um borð í vélinni og sakaði engan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert