Fimm milljónir Frakka án rafmagns

Ómar

Rafmagnið fór af um fimmtán héruðum í Frakklandi um tíuleytið í kvöld, níu á íslenskum tíma, og er talið að fimm milljónir séu án rafmagns. Ekki er vitað hvað olli rafmagnsleysinu en rafmagn var ekki komið á alls staðar eftir miðnætti í nótt. Hluti Parísar er án rafmagns og hafa slökkviliðsmenn í borginni sinnt um fjörtíu útköllum til þess að bjarga fólki út úr lyftum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert