Árni Johnsen í 2. sæti í prófkjöri í Suðurkjördæmi

Frambjóðendur hlusta á fyrstu tölur lesnar upp í Tryggvaskála í …
Frambjóðendur hlusta á fyrstu tölur lesnar upp í Tryggvaskála í kvöld. mbl.is/Sig. Jóns.

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, hafði fengið flest atkvæði, eða 994, í 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, þegar búið var að telja 1800 af um 5200 atkvæðum sem greidd voru, eða um 35%. Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, var í 2. sæti með 668 atkvæði í 1.-2. sæti og Kjartan Ólafsson, alþingismaður, hafði fengið 684 atkvæði í 1.-3. sæti. Sjálfstæðisflokkur fékk þrjú þingsæti í kjördæminu í síðustu kosningum.

Í næstu sætum eru Drífa Hjartardóttir, alþingismaður, með 757 atkvæði í 1.-4. sæti, Unnur Brá Konráðsdóttir, lögfræðingur og sveitarstjóri, var með 903 atkvæði í 1.-5. sæti og Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, var með 1062 atkvæði í 1.-6. sæti.

Aðrir þátttakendur í prófkjörinu voru alþingismennirnir Gunnar Örlygsson og Guðjón Hjörleifsson, Kristján Pálsson, fyrrverandi alþingismaður, Birgitta Jónsdóttir Klasen, náttúrulæknir, Grímur Gíslason, framkvæmdastjóri, Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarforstjóri og Kári H. Sölmundarson, sölustjóri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert