Stinningarlyf seljast grimmt í Danmörku

Stinningarlyf.
Stinningarlyf. mbl.is/Brynjar Gauti

Þrátt fyrir að hægist á sölu stinningarlyfja á heimsvísu þá eykst salan mikið í Danmörku. Stinningarlyfin Viagra, Cialis og Levitra seljast þar grimmt, aukning í sölu er þar meiri en 8-9% aukningin á heimsvísu.

Á fyrsta ársfjórðungi 2006 varð 24% aukning í sölu á þessum þremur lyfjum frá fyrra ári og á öðrum ársfjórðungi jókst sala um 17,5%. Útskýringin er líklega sú að karlmenn eru orðnir sér meðvitaðri um ristruflanir og vita að þær er hægt að meðhöndla. Dagblaðið Berlingske tidende segir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert