Halli á vöruskiptum nærri 123 milljarðar

mbl.is

Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,8 milljarða króna og inn fyrir 33,2 milljarða króna að sögn Hagstofunnar. Vöruskiptin í nóvember voru því óhagstæð um 13,5 milljarða króna. Í nóvember 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,2 milljarða króna á föstu gengi.

Fyrstu ellefu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 213 milljarða króna en inn fyrir 335,6 milljarða króna. Hallinn nam því 122,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 94,7 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Samkvæmt útreikningum Hagstofu var verðmæti vöruútflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins 12,2 milljörðum eða 6,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 54,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,8% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,4% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 40,1 milljarði eða 13,6% meira á föstu gengi en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 21,7 milljarða, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 32,5%.

Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 25,9%, eða um 18,3 milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 11,2% aukningar, eða um 3,3 milljarða. Innflutningur neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 6,7% eða 3,2 milljarða en 4,8% aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 12,4%, eða um 7,4 milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings en einnig varð samdráttur í innflutningi fólksbíla.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK