Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs umferðarslyss

mbl.is

Suðurlandsvegi hefur verið lokað við Kotströnd rétt austan við Hveragerði en mjög alvarlegt umferðarslys varð þar um hálf eitt leytið í dag. Munu tveir bílar, vörubíll og fólksbíll, hafa rekist þar saman. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki vitað nánar um tildrög slyssins en lögregla og sjúkralið er á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert