Árekstur á Vesturlandsvegi vegna ógætilegs framúraksturs

Árekstur varð í dag á Vesturlandsvegi við Svignaskarð þegar vörubíll tók fram úr á ógætilegan hátt. Bíll sem kom á móti þurfti að sveigja frá og lenti á fellihýsi bifreiðar sem kom úr gagnstæðri átt. Engin meiðsl urðu á fólki en bifreiðin er mikið skemmd og fellihýsið talið ónýtt. Vörubílstjórinn sem olli slysinu ók á brott en lögregla hefur haft uppi á honum og telst málið upplýst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert