Ferðalagi húss lokið

Talsverður hópur fylgdist með því þegar húsinu var komið fyrir …
Talsverður hópur fylgdist með því þegar húsinu var komið fyrir við Bergstaðarstræti mbl.is/Kristinn

Búið er að koma húsinu sem áður stóð við Hverfisgötu 44 fyrir á grunninum við Bergstaðastræti þar sem það hefur fengið nýtt heimilisfang. Talsverður hópur fólks fylgdist með því í kvöld þegar húsinu var lyft með krana af bílnum sem það ferðaðist með síðastliðna nótt um miðborg Reykjavíkur og sett á grunninn.

Lyfti kraninn húsinu og ók bíllinn undan því, kraninn færði því næst húsið og lagði það niður á grunninn þar sem það stendur núna, og mun væntanlega gera næstu árin. Öll sú aðgerð mun hafa gengið stórslysalaust fyrir sig, en húsið olli minniháttar skemmdum í morgun þegar það rakst utan í glugga og þakskegg annarra húsa á ferðalaginu í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert