1000 hraðabrot mynduð á mánuði í Hvalfjarðarsveit

Frá blaðamannafundi þar sem hertar aðgerðir við umferðareftirlit voru kynntar.
Frá blaðamannafundi þar sem hertar aðgerðir við umferðareftirlit voru kynntar. mbl.is/Júlíus

Stafrænar myndavélar í Hvalfjarðarsveit hafa myndað 3152 hraðabrot frá því þær voru settar upp í byrjun júlí eða rúmlega 1000 hraðabrot á mánuði. Heildarsektir vegna þessara brota nema 55 milljónum króna. Verið er að vinna að uppsetningu sjö nýrra hraðamyndavéla víða um land og sjö myndavélar verða settar upp á næsta ári.

Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem samgönguráðuneytið og ríkislögreglustjóri héldu í dag. Frá áramótum og út september voru gefin út 15.389 sektarboð vegna hraðakstursbrota á landinu öllu þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Myndir úr hraðamyndavélum eru dulkóðaðar og sendar til lögreglustjórans á Snæfellsnesi þar sem unnið er úr þeim. Málið er síðan sent til lögreglustjórans á Hvolsvelli þar sem greiðsluseðlar vegna sektanna eru prentaðir út og sendir þeim sem brotið framdi.

Vegagerðin sér um uppsetningu og viðhald stafrænu hraðamyndavélanna og fjármagnar kaup þeirra samkvæmt samningi milli ríkislögreglustjóra, Vegagerðarinnar og Umferðarstofu, fyrir hönd Samgönguráðuneytisins. Samkvæmt samningnum var ákveðið að veita 218 milljónum króna til að herða til muna umferðareftirlit, bæði á þjóðvegum og í þéttbýli.

Auk þess að fjármagna stafrænu hraðamyndavélarnar sextán hefur þessari upphæð meðal annars verið varið til kaupa á átta nýjum lögreglubifhjólum, 32 ratsjártækjum með myndavélum í lögreglubíla, 11 öndunarsýnismælum, auk þess að tryggja tvö stöðugildi hjá lögreglustjóranum á Snæfellsnesi við úrvinnslu á myndum stafrænu hraðamyndavélanna. Með samningnum bæði verið að bæta tækjakost lögreglunnar og gera henni kleift að fylgja hugsanlegum brotum eftir af fullum þunga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert