Átök fótboltaáhugamanna stöðvuð í fæðingu

Til slagsmála kom eftir tap Íslendinga gegn Lettum á Laugardalsvellinum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík var þó ekki um alvarleg átök að ræða enda skárust lögreglumenn strax í leikinn og náðu þeir að róa mannskapinn. Enginn slasaðist í slagmálunum og enginn var handtekinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert