Allar vísbendingar kannaðar

Lögreglumenn að sjást hér að störfum fyrr í kvöld.
Lögreglumenn að sjást hér að störfum fyrr í kvöld. Víkurfréttir/Þorgils

Leit að ökumanni sem lét sig hverfa eftir að hann ók á fjögurra ára gamlan dreng hefur enn engan árangur borið. Lögreglunni hefur þó borist fjöldi ábendinga sem hún kannar gaumgæfilega.

Ekið var á drenginn við gatnamót Vesturgötu og Birkiteigs í Reykjanesbæ um kl. 17 í dag. Barnið var flutt alvarlega slasað á slysadeild í Reykjavík.

Lögregla lýsir eftir dökkleitum eða bláum skutbíl sem sást yfirgefa vettvanginn. Hugsanlegt er að dæld sé á bílnum framanverðum.

Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar um atburðinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert