Hafnar hækkun útflutningshlutfalls vegna sauðfjárslátrunar
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur hafnað tillögu Markaðsráðs kindakjöts um að auka útflutning vegna vaxandi birgðasöfnunar á kindakjöti. Segir hann það stríða gegn þeirri viðleytni að flýta slátrun og auka sölu á fersku dilkakjöti innanlands.
Með þessu segist ráðherra og vera að styðja við framtak þeirra bænda sem reiðubúnir eru að taka þátt í þeirri markaðsþróun sem fólgin sé í sölu á fersku lambakjöti. Jafnframt vilji hann með þessari ákvörðun hvetja bændur, sláturleyfishafa og verslanir til að vinna enn betur en áður að markaðssetningu fersks dilkakjöts.
Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu í dag og meðfylgjandi bréfi til Markaðsráðs kindakjöts, sem í sitja fulltrúar frá framleiðendum og sláturleyfishöfum. Hafði ráðið óskað eftir því að útflutningshlutfalli vegna sauðfjárslátruna á tímabilinu 19.-31. ágúst yrði aukið úr 10% í 14%, en því hafnaði ráðherrann í dag.
Í bréfinu til Markaðsráðsins er skírskotað til þess að í sauðfjársamningi sem undirritaður var 1. október 1995 var samið um að komið skyldi á jafnvægi í birgðum kindakjöts þannig að birgðir í lok verðlagsárs væru eigi meiri en sem næmi eins mánaðar sölu innanlands. Lagði ríkið fram fé til að greiða fyrir útflutningi kindakjöts þannig að það markmið næðist 1. september 1996.
„Þessu marki var náð fyrstu ár samningsins en síðan hafa birgðir aukist nokkuð vegna minnkandi sölu innanlands og aukinnar framleiðslu. Á komandi hausti er gert ráð fyrir að birgðir verði meiri en markmið samningsins gera ráð fyrir," segir í bréfinu.
Til baka








Senda inn efni