Eldsmaturinn 2 þúsund tonn af dekkjum
Talið er að tvö þúsund tonn af hjólbörðum hafi brunnið hjá endurvinnslufyrirtækinu Hringrás í fyrrinótt. Fyrirtækið byrjaði að safna gúmmíhjólbörðum snemma á þessu ári, m.a. frá Sorpu. Hjólbarðana átti síðan að tæta niður og urða. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var ástæðan fyrir því að hjólbarðahaugurinn var svona stór nú, að verið var að vinna að því að finna aðra leið til að eyða þeim. Jafnvel að senda þá úr landi með skipi.
Í yfirlýsingu Hringrásar vegna brunans er eldsvoðinn harmaður. Einnig harmar félagið þau óþægindi og röskun sem nágrannar, bæði fyrirtæki og einstaklingar, hafi orðið fyrir vegna brunans. Vilja forráðamenn félagsins koma á framfæri sérstöku þakklæti til slökkviliðs og lögreglu og annarra sem unnið hafi frábært starf við að ráða niðurlögum eldsins.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni